Omega3 Forte Bleikt +D&E

Varan er einungis fáanleg í október og er til styrktar Bleiku slaufunnar sem er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. 300 krónur af hverri seldri dós rennur óskipt til verkefnisins.


Varan samanstendur af hylkjum sem innihalda ómega-3 fiskiolíuþykkni (í formi etýlestera) ásamt D- og E-vítamíni.


Ómega-3


Ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. DHA er auk þess eitt mikilvægasta byggingarefni í frumum heilans, augnanna og miðtaugakerfisins og stuðlar að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar.


Þar sem líkaminn myndar ekki nægjanlegt magn af EPA og DHA þurfa fitusýrurnar að berast með fæðu. Þær er helst að finna í sjávarfangi og er lýsi því góð leið til að fá þessar lífsnauðsynlegu fitusýrur.


D-vítamín

D-vítamín er lykilþáttur upptöku og nýtingu kalsíum og fosfórs í líkamanum og stuðlar þannig að eðlilegum vexti og viðhaldi beina, tanna og vöðva. Það stuðlar einnig að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.


Á norðlægum slóðum þar sem sólar nýtur lítið við stóran hluta ársins þarf sérstaklega að huga að inntöku D-vítamíns. Þar að auki getur reynst erfitt að ná nægu magni úr fæðu en skortur á D-vítamíni er algengur víða um heim. Sjá frekari upplýsingar um D-vítamín á vefsíðu Embætti Landlæknis.


E-vítamín


E-vítamín er fituleysanlegt andoxunarefni og verndar frumur gegn oxun.


Frekari upplýsingar um heilsufarsleg áhrif af vörum Lýsis er að finna hér

Bleika slaufan
Við styrkjum bleiku slaufuna
Bleika slaufan logo
Bleika slaufan
Bleika slaufan_bleikur himinn
Við styrkjum bleiku slaufuna
Bleika slaufan logo
Bleika slaufan
Bleika slaufan_bleikur himinn

Innihald

650 mg omega-3 fiskiolía (sem etýlesterar), gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról [E422]), vatn, dl-alfa-tókóferýlasetat (E-vítamín), þráavarnaefni (blönduð tókóferól [E306]), kólekalsíferól (D3-vítamín).

Ráðlagður neysluskammtur

2 hylki á dag

Næringargildi

í 2 perlum

Omega-3 fitusýrur620 mg
Þar af:
- EPA310 mg
- DHA205 mg
D-vítamín15 µg (300%)*
E-vítamín10 mg (83%)*
* % af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna
Embætti landlæknis ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir börn yngri en 10 ára, 15 µg fyrir 10-70 ára og 20 µg fyrir 71 árs og eldri.