Omega3 Forte + D & E
Hylki sem innihalda ómega-3 fiskiolíuþykkni (í formi etýlestera), D-, og E-vítamín. Búið er að auka styrkleika EPA og DHA með eimingu þannig að hylkin innihalda hlutfallslega meira magn af fitusýrunum en aðrar Lýsis vörur.
Ómega-3
Ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. DHA er auk þess eitt mikilvægasta byggingarefni í frumum heilans, augnanna og miðtaugakerfisins og stuðlar að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar.
Þar sem líkaminn myndar ekki nægjanlegt magn af EPA og DHA þurfa fitusýrurnar að berast með fæðu. Þær er helst að finna í sjávarfangi og er lýsi því góð leið til að fá þessar lífsnauðsynlegu fitusýrur.
D-vítamín
D-vítamín er lykilþáttur upptöku og nýtingu kalsíum og fosfórs í líkamanum og stuðlar þannig að eðlilegum vexti og viðhaldi beina, tanna og vöðva. Það stuðlar einnig að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Á norðlægum slóðum þar sem sólar nýtur lítið við stóran hluta ársins þarf sérstaklega að huga að inntöku D-vítamíns. Þar að auki getur reynst erfitt að ná nægu magni úr fæðu en skortur á D-vítamíni er algengur víða um heim. Sjá frekari upplýsingar um D-vítamín á vefsíðu Embætti Landlæknis.
Frekari upplýsingar um heilsufarsleg áhrif af vörum Lýsis er að finna hér.

Innihald
Ómega-3 etýlesterar (úr lýsi), gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról (E422)), dl-alfa-tókóferýlasetat (Evítamín), þráavarnarefni (blönduð tókóferól (E306)), kólekalsíferól (D3-vítamín).
Hver perla inniheldur 650 mg.
Ráðlagður neysluskammtur
2 perlur á dag.
Næringargildi
í 2 perlum
Tungumál


