Þorskalýsi

Hollustu þorskalýsis þekkja allir Íslendingar enda hefur það fylgt þjóðinni í gegnum aldirnar og er framleitt úr íslenskri lifur sem safnað er frá bátum og skipum um land allt. Þorskalýsi inniheldur hátt hlutfall ómega-3 fitusýra auk þess að vera auðugt af A-, D- og E-vítamínum.


Þorskalýsi er fáanlegt óbragðbætt í 240 ml og 500 ml flösku eða bragðbætt með sítrónu eða sítrónu og myntu í 240 ml flösku.


Ómega-3

Ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. DHA er auk þess eitt mikilvægasta byggingarefni í frumum heilans, augnanna og miðtaugakerfisins og stuðlar að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar.


Þar sem líkaminn myndar ekki nægjanlegt magn af EPA og DHA þurfa fitusýrurnar að berast með fæðu. Þær er helst að finna í sjávarfangi og er lýsi því góð leið til að fá þessar lífsnauðsynlegu fitusýrur.


A-, D- og E-vítamín

A-, D- og E- vítamín eru öll mikilvæg næringarefni með margvísleg jákvæð áhrif á líkamann meðal annars á ónæmiskerfið. Þorskalýsi er góður D-vítamíngjafi sem er lykilþáttur upptöku og nýtingu kalsíum og fosfórs í líkamanum og þar með vexti og viðhaldi beina, tanna og vöðva.


Á norðlægum slóðum þar sem sólar nýtur lítið við stóran hluta ársins þarf sérstaklega að huga að inntöku D-vítamíns. Þar að auki getur reynst erfitt að ná nægu magni úr fæðu en skortur á D-vítamíni er algengur víða um heim. Sjá frekari upplýsingar um D-vítamín á vefsíðu Embætti Landlæknis.

Cod_liver_oil_Kassi_Flaska_240_500
Cod_Liver_Oil_Lemon_Flaska_Kassi
lysi-og
Cod_liver_oil_Kassi_Flaska_240_500
Cod_Liver_Oil_LemonMint_Flaska_Kassi
Cod_Liver_Oil_Lemon_Flaska_Kassi
lysi-og
Cod_liver_oil_Kassi_Flaska_240_500
Cod_Liver_Oil_LemonMint_Flaska_Kassi

Innihald

Þorskalýsi, þráavarnarefni (blönduð tókóferól), E-vítamín (d-alfa-tókóferýlasetat), A-vítamín (retínólpalmítat), D-vítamín (kólekalsíferól).

Ráðlagður neysluskammtur

Frá 6 mánaða aldri 1 teskeið (5 ml) á dag.

6 ára og eldri 2 teskeiðar (10 ml) á dag.

Næringargildi

í 10 ml

Omega-3 fitusýrur2160 mg
Þar af:
- EPA690 mg
- DHA920 mg
A-vítamín460 µg (58%)*
D-vítamín20 µg (400%)*
E-vítamín9,2 mg (77%)*
* % af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna.
Embætti landlæknis ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir börn yngri en 10 ára, 15 µg fyrir 10-70 ára og 20 µg fyrir 71 árs og eldri.