Krakkalýsi

Krakkalýsi inniheldur A-, D- og E-vítamín auk þess að vera ríkt af ómega-3 fitusýrum.


Krakkalýsi er afrakstur þróunarstarfs Lýsis sem unnið var í samráði við foreldra og börn. Lýsið er unnið á sérstakan hátt þannig að magn A- og D- vítamína verði hæfilegt fyrir börn auk þess sem það inniheldur meira magn af fitusýrunni DHA sem er mikilvæg fyrir þroska heilans og taugakerfisins.


Krakkalýsi er fáanlegt óbragðbætt og með mangó- og sítrusbragði.


Ómega-3

Krakkalýsi inniheldur ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA sem stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. DHA er auk þess eitt mikilvægasta byggingarefni í frumum heilans, augnanna og miðtaugakerfisins og stuðlar að viðhaldi eðlilegrar heilastarfsemi og sjónar.


Þar sem líkaminn myndar ekki nægjanlegt magn af EPA og DHA þurfa fitusýrurnar að berast með fæðu. Þær er helst að finna í sjávarfangi og er lýsi því góð leið til að fá þessar lífsnauðsynlegu fitusýrur.


A-, D- og E-vítamín

A-, D- og E- vítamín eru öll mikilvæg næringarefni með margvísleg jákvæð áhrif á líkamann meðal annars á ónæmiskerfið. Krakkalýsi er góður D-vítamíngjafi sem er lykilþáttur upptöku og nýtingu kalsíum og fosfórs í líkamanum og þar með vexti og viðhaldi beina, tanna og vöðva og því sérstaklega mikilvægt fyrir börn sem eru að vaxa.


Á norðlægum slóðum þar sem sólar nýtur lítið við stóran hluta ársins þarf sérstaklega að huga að inntöku D-vítamíns. Þar að auki getur reynst erfitt að ná nægu magni úr fæðu en skortur á D-vítamíni er algengur víða um heim. Sjá frekari upplýsingar um D-vítamín á vefsíðu Embætti Landlæknis.


Frekari upplýsingar um heilsufarsleg áhrif af vörum Lýsis er að finna hér

Krakkalysi_med_og_an_bragdefna
Krakkalýsi_Bragðefni_Kassi_Flaska_Lowres
Thorri thorskur a hjolabretti cool kids
Krakkalysi_med_og_an_bragdefna
Krakkalýsi_Kassi_Flaska
Krakkalýsi_Bragðefni_Kassi_Flaska_Lowres
Thorri thorskur a hjolabretti cool kids
Krakkalysi_med_og_an_bragdefna
Krakkalýsi_Kassi_Flaska

Innihald

Þorskalýsi, túnfisklýsisblanda, þrávarnarefni (blönduð tókóferól), E-vítamín (d-alfa-tókóferýlasetat), A-vítamín (retinýlpalmítat), D-vítamín (kólekalsíferól).

Ráðlagður neysluskammtur

Frá 6 mánaða aldri 1 teskeið (5 ml) á dag.

6 ára og eldri 2 teskeiðar (10 ml) á dag.

Næringargildi

í 10 ml

Omega-3 fitusýrur2390 mg
Þar af:
- EPA690 mg
- DHA1290 mg
A-vítamín275 µg (34%)*
D-vítamín18,4 µg (368%)*
E-vítamín9,2 mg (77%)*
* % af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna.
Embætti landlæknis ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir börn yngri en 10 ára, 15 µg fyrir 10-70 ára og 20 µg fyrir 71 árs og eldri.